Monday, April 23, 2007

HINN MIKLI BANKAMAÐUR....

Já nú er það orðið offisíellt að kallinn er orðinn að fégráðugri bankarottu.. Fyrsti dagurinn í nýju vinnunni var í dag. Dagurinn var frekar rólegur eins og gefur að skilja þar sem að ég hef nú aldrei komið nálægt bankanum nema þá sem kúnni. Gat ekki mikið gert í dag annað en að reyna að setja mig inn í hlutina eins vel og ég gat. Spurning um að henda sér bara út í þetta á morgun og reyna bara að redda sér með því að spyrja allt og alla. Held að það gangi ekki öðruvísi. Með nýja djobbinu bætist maður í hóp ágætra manna og kvenna eins og Hjörtinn, Finna, Snorra & Ernu, Hansa, Runa, Sigrúnu Hjartar, Ásdísi kjartans & fleiri sem ég ekki man akkurat núna sem nú þegar eru fullgildar bankarottur. Ætli næsta stopp verði ekki að maður verði fastagestur á Olíver...hahahah

Bankarottan kveður í bili..

1 comment:

Anonymous said...

Til lukku með nýja starfið Jón Örn. Þú veist líka þegar maður er farinn að vinna í banka að þá er regla nr. 1,2 & 3 að vera alls EKKI með uppábrot á buxunum sínum hehehe.